Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Lokaviðburður Startup Storms
Menningarhúsið Hof

Lokaviðburður Startup Storms

14. nóvember kl. 16:00 - kl. 18:00 2024
Hýst af Norðanátt

Lokaviðburður Startup Storms er verður haldinn fimmtudaginn 14. nóvember nk. frá kl. 16-18.

Sjö teymi voru valin í Startup Storm og eru þau búin að vera að vinna að nýsköpunarverkefnum sínum með okkur sl. sjö vikur. Á viðburðinum munu þau stíga á svið og segja okkur frá sínu fyrirtæki með stuttri kynningu (e. pitch)

Teymin eru:

Akur Organic - Nýtt framleiðslufyrirtæki í lífrænni ræktun í Langanesbyggð.

Syðra Holt – Fjölmenningarlegt lífrænt býli sem starfar á sviði landbúnaðar, búfjárræktar, matvælaframleiðslu og lista, með það að markmiði að halda áfram að vaxa og þróa verkefnið með opnun kaffihúss (veitingahús).

Hret Víngerð – Hret víngerð þróar létt og freyðandi ávaxtavín sem bruggað er á Norðurlandi vestra úr rabarbörum af svæðinu og selt heima- og ferðamönnum um land allt.

Skynró – Hannar fatnað fyrir einstaklinga með skynúrvinnsluvanda. Flíkurnar munu sinna ólíkum skynþörfum einstaklinga með aukahlutum sem eru skynörvandi, veita ró og öryggi án þess að vera áberandi.

Kayakar – Kajakleiga þar sem þú ferð á eigin vegum. Einnig er þetta hjólaleiga með skipulagðar ferðir og matarupplifun. Fyrirtæki í stöðugri vöruþróun í afþreyingarferðamennsku.

Listakot Dóru – Söguganga í myrkri undir orðinu myrkurgæði. Það er upplifun að vera í algjöru myrkri og hafa landslagið í skugga.

Semey – Listamannadvöl á Ólafsfirði, útbúa aðstöðu og umgjörð fyrir listamenn til að iðka list og efla skapandi greinar í Fjallabyggð.

Viðburðurinn fer fram í Hofi á Akureyri og verða léttar veitingar í boði fyrir gesti.

Við lofum góðri skemmtun og vonumst til að til að sjá þig á lokaviðburði Startup Storms á Akureyri! 😊

Til að áætla fjölda fyrir veitingar, vinsamlegast skráðu þig á viðburðinn https://www.ssne.is/is/moya/formbuilder/index/index/lokavidburdur-startup-stormur