Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Verkstæði Hugmyndasmiða: hræðileg draugasmiðja
Elliðaárstöð

Verkstæði Hugmyndasmiða: hræðileg draugasmiðja

26. október kl. 10:00 2024

VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í ELLIÐAÁRSTÖÐ

FJÖLSKYLDUSMIÐJA

Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 7-12 ára og foreldrum þeirra og leggur fyrir mismunandi hönnunaráskoranir á Verkstæði Hugmyndasmiða í gömlu Rafstöðinni í Elliðaárstöð. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið verður með endurnýttan efnivið sem við björgum til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir.

Dagskrá vetrarins

Laugardaginn 26. október kl 10-12 - Hræðileg draugasmiðja

Laugardaginn 2. nóvember kl 10-12 - Höfum hátt

Laugardaginn 16. nóvember kl 10-12 - Virkjum vindinn

Laugardaginn 30. Nóvember kl 10-12 - Jólaverur lifna við

Laugardaginn 7. desember kl 10-12 - Lifandi jólakveðja

Laugardaginn 7. desember kl 14-16 - Jólaleg stimplagleði

Laugardaginn 14. desember kl 10-12 - Jólalegt könglaskraut

Laugardaginn 14. desember kl 14-16 - Jólalegt könglaskraut

Laugardaginn 21. desember kl 10-12 - Jólaleg stimplagleði

Skráning á heimasíðu Elliðaárstöðvar - takmarkaður fjöldi kemst að í hverja smiðju.

3000 kr fyrir einn skapandi krakka

15% afsláttur fyrir systkini

Frítt fyrir fullorðna fylgifiska

Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði!

Hér eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga á verkstæðinu:

- Mætið í viðeigandi fatnaði á verkstæðið

- Við munum vinna með verkfæri og mikilvægt að allir fari varlega

- Börnin eru á ábyrgð fullorðinna fylgifiska

- Gott er að taka með sér vatnsbrúsa

Verkstæðið er samstarfsverkefni Hugmyndasmiða, Elliðaárstöðvar, Terra og Sorpu.