Gróska hugmyndahús
Nýsköpunarþing 2024
22. október kl. 14:00 2024
Nýsköpunarþing 2024 verður haldið í Grósku þriðjudaginn 22. október kl. 14:00-15:30. Á þinginu verður sjónum beint að sölu- og markaðsmálum íslenskrar nýsköpunar á erlendum mörkuðum.
Hvað þarf til, til að ná árangri á alþjóðlegum mörkuðum? Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna? Leggja íslensk fyrirtæki næga áherslu á sölu- og markaðsmál og uppbyggingu vörumerkja? Til að svara þessum spurningum og fleirum munu aðilar úr íslensku og alþjóðlegu markaðs- og nýsköpunarumhverfi deila reynslu af sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum.
Nánari dagskrá verður birt innan skamms.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024 verða afhent á þinginu.
Skráðu þig hér: qrfy.io/r/Nyskopunarthing-2024




