Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Verkstæði Hugmyndasmiða: Skógarverur lifna við
Rafstöðin í Elliðaárstöð

Verkstæði Hugmyndasmiða: Skógarverur lifna við

5. október kl. 10:00 2024
Rafstöðin í Elliðaárstöð

VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í ELLIÐAÁRSTÖÐ

FJÖLSKYLDUÁSKORANIR

Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 7-12 ára og foreldrum þeirra og leggur fyrir mismunandi hönnunaráskoranir á Verkstæði Hugmyndasmiða í Rafstöðinni í Elliðaárstöð. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið verður með endurnýttan efnivið sem við björgum til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir.

Dagskrá vetrarins

Laugardaginn 5. október kl 10-12 - Skógarverur lifna við

Laugardaginn 19. október kl 10-12 - Hönnum hús

Laugardaginn 2. nóvember kl 10-12 - Höfum hátt

Laugardaginn 16. nóvember kl 10-12 - Virkjum vindinn

Laugardaginn 7. desember kl 10-12 - Lifandi jólakveðja

Skráning á heimasíðu Elliðaárstöðvar - takmarkaður fjöldi kemst að í hverja smiðju.

3000 kr fyrir einn skapandi krakka

15% afsláttur fyrir systkini

Frítt fyrir fullorðna fylgifiska

Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði!

Rafstöðin í Elliðaárstöð
Hýst af:
Hugmyndasmiðir
Hugmyndasmiðir
Elliðaárstöð
Elliðaárstöð