Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun í vestri: Frumkvöðladagur á Vesturlandi
Hjálmaklettur

Nýsköpun í vestri: Frumkvöðladagur á Vesturlandi

4. október kl. 13:00 - kl. 17:00 2024
Hýst af Gleipnir

Markmið "Nýsköpunar í vestri" er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.

Dagskráin er blanda af fræðslu, reynslusögum og tengslamyndun. Þátttakendur munu læra af reyndum frumkvöðlum og kynnast nýju fólki. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Dagurinn endar með léttum veitingum og stefnumóti.

Þátttaka í Nýsköpun í vestri er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til að áætla veitingar og minnka matarsóun.

Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.