Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
HönnunarÞing - Nýsköpun og hönnun
Hafnarstétt 3

HönnunarÞing - Nýsköpun og hönnun

4. október kl. 14:00 - 5. október kl. 23:45 2024

Öll velkomin á HönnunarÞing / Design Thing sem er hátíð nýsköpunar og hönnunar. Áherslan í ár er á tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar og tónlistar. Þetta verður skemmtilegt, fróðlegt og gagnlegt. Í gegnum tóna og tal dagskrárinnar kynnumst við því hvernig spila má á strengi nýsköpunar, þjálfa sköpunarvöðvann og sjá hugmynd verða að veruleika. Svo má líka dansa.

Á dagskránni eru meðal annars bátahönnuður, fjárfestir og stjórnarmanneskja frá Bang & Olufsen, tölvuleikjahönnuður, hugarheimur Skálmaldar, leyndarmál, geimskip, ný íslensk hljóðtækni, frumkvöðlar, forritari, dreki, sjóböð og stórkostlegt tónlistarfólk með uppákomur. Fjölbreyttir þræðir skapandi huga sem búið er að spinna saman í vef HönnunarÞings 2024 á Húsavík.

HönnunarÞing fer fram á Stéttinni dagana 4. – 5. október, hægt er að njóta einstakra dagskrárliða eða allra. Aðgangur er frír nema á þann sem haldinn verður í og í samvinnu við Geosea á Húsavík.

Dagskrána í heild sinni má finna inn á https://www.hradid.is/designthing

*með fyrirvara um breytingar og skapandi útfærslur á dagskrá

Hafnarstétt 3
Stéttin Húsavík
Hýst af:
Hraðið
Hraðið
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)