Kynning: Gulleggið 2025 - Akureyri
Gulleggið er stærsta nýsköpunarkeppni landsins og verður hún haldin í 18. skipti í febrúar 2025.
Kynningarfundur um Gulleggið verður haldinn á Strikinu á Akureyri miðvikudaginn 2.október, kl. 17:00.
Viðburðurinn er opinn öllum og léttar veitingar eru í boði.
Verkefnastjóri Gulleggsins mun kynna keppnina og mun standa til boða að taka þátt í happdrætti, þar sem hægt er að vinna flug til Reykjavíkur til þess að mæta á Vísindaferð Gulleggsins - stærstu vísindaferð landsins!
Gulleggið er opið öllum, með eða án hugmyndar. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á nýsköpun að taka þátt.
Masterclass Gulleggsins verður haldinn helgina 25.-26. janúar, en það er opið (og frítt) tveggja daga námskeið í nýsköpun og stofun sprotafyrirtækja. Masterclassinn samanstendur af vinnusmiðjum og fyrirlestrum, þar sem fjöldi reyndra frumkvöðla og sérfræðinga aðstoðar frumkvöðla við sín fyrstu skref.
Masterclass Gulleggsins verður einnig haldinn á Akureyri, þar sem hann verður í beinu streymi og fulltrúi frá KLAK verður á staðnum til aðstoðar, t.d. við undirbúning umsóknar í keppnina.
Hugmyndahraðhlaup Háskólanna verður svo haldið í fyrsta skipti helgina 4.-5. janúar. Viðburðurinn verður opinn öllum háskólanemum landsins og er tækifæri til þess að finna sér teymi og þóa með því nýsköpunarhugmynd innan öflugs stuðningsumhverfis - sem má svo senda inn í Gulleggið .
Hlökkum til að sjá þig!


