Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Startup Tourism - Hvað er að frétta?
Skútuvogur 11

Startup Tourism - Hvað er að frétta?

26. september kl. 12:00 - kl. 13:00 2024

26. september ætlar KLAK Icelandic Startups að kynna endurkomu Startup Tourism viðskiptahraðalsins og spjalla um fyrirkomulagið á honum í ár!

Startup Tourism er fimm vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Markmiðið er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum, ýta undir tæknivæðingu í ferðaþjónustu og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

💥Við verðum í ESSO safninu við Skútuvog 11 í frá klukkan 12:00-13:00 og munum bjóða uppá léttan hádegisverð - svo takið daginn frá fyrir áhugavert nýsköpunarhádegi!

Dagskrá:

⚡️Ásta Sóllilja - framkvæmdastjóri KLAK: Hvernig styður KLAK við nýsköpun í ferðaþjónustu?

⚡️Kolfinna Kristínardóttir - verkefnastjóri Startup Tourism: Fyrirkomulag Startup Tourism hraðalsins 2024 - praktísk atriði.

⚡️Einar Skúlason, stofnandi Wapp, fyrrum þátttakandi í Startup Tourism: Reynslusaga frá þátttöku í hraðlinum - Hvernig má nýta sér verkfærakistu viðskiptahraðalsins?

💻Viðburðinum verður einnig streymt á startuptourism.is og upptaka gerð aðgengileg að viðburði loknum

🚗Startup Tourism teymið verður einnig á ferð og flugi vikuna 30. september- 3. október og munu halda kynningarviðburði víðsvegar um landið. Nánari dagskrá verður auglýst fljótlega!

Styrktaraðilar Startup Tourism eru Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Berjaya Iceland Hotels, Icelandair, N1 og Icelandia, auk þess sem Íslenski ferðaklasinn / Iceland Tourism og Íslandsstofa koma að verkefninu sem samstarfsaðilar.