Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Hliðarviðburður | Oslo Innovation Week
Sendiherrabústað Íslands í Osló

Hliðarviðburður | Oslo Innovation Week

26. september kl. 16:00 - kl. 18:00 2024
Sendiherrabústað Íslands í Osló

Íslandsstofa í samstarfi við Sendiráð Íslands í Osló auglýsir hliðarviðburð á Oslo Innovation Week sem fer fram dagana 23.-27. september 2024.

Viðburðurinn verður haldinn fimmtudaginn 26. september klukkan 16:00-18:00 í sendiherrabústaðnum í Osló. Þar gefst íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum kostur á að kynna vörur sínar og þjónustu fyrir fjárfestum og öðrum hagaðilum. Formleg dagskrá viðburðarins verður auglýst síðar.

Fyrirtæki sem vilja heimsækja hina líflegu Osló borg og hafa áhuga á að taka þátt í viðburðinum eru hvött til að hafa samband við viðskiptafulltrúa sendiráðsins í Osló, Hebu Líf Jónsdóttur í gegnum netfangið hennar: heba.lif.jonsdottir@utn.is fyrir 5.júlí.

Viðburðurinn er þegar skráður hjá Oslo Innovation Week og ber heitið „Innovation from the Saga Nation“. Aðrir, svo sem fjárfestar og fólk úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi sem hafa áhuga á að mæta, geta skráð sig hér að neðan.

Þá daga sem hátíðin stendur eru haldnir fjöldamargir viðburðir um alla borg. Ólíkt öðrum nýsköpunarhátíðum er engin miðasala á Oslo Innovation Week. Í flestum tilvikum er aðgangur að viðburðum ókeypis en skráningar er krafist. Það er því er tilvalið að nýta vikuna til að sækja sem flesta viðburði og kynnast nýsköpunarumhverfinu í Noregi. Sjá dagskrá Oslo Innovation Week hér: https://oiw.no/program/1

Skráning fer fram hér: https://elinkeu.clickdimensions.com/c/7/eyJhaSI6NDg1Mzk2MjQsImUiOiJza2FwYUBza2FwYS5pcyIsInJpIjoiY29udGFjdC1hNmI2YjEyNTY2NGRlZTExYmU2ZTYwNDViZDhjNTFmZS1jNjc4NTgzODE4ZWM0NDlkODYzYTU1YzhiMmQxYzQzYyIsInJxIjoicDEtYjI0MTcwLWVhODk5YWE3ZjgzOTRkMWI4YjhlZjFjOTNiYTA4Zjg2IiwicGgiOm51bGwsIm0iOmZhbHNlLCJ1aSI6IjIiLCJ1biI6IiIsInUiOiJodHRwczovL2Zvcm1zLm9mZmljZS5jb20vUGFnZXMvUmVzcG9uc2VQYWdlLmFzcHg_aWQ9VHFRVXZQdmdDMDZsTlJBRmVkUWJaYlRWSGEwMVdSRkttR3NDbDlUM0pMcFVNRmxhTmtWRFdWWllTMUpEVGtOVE5rUXdXRm8yVDBKSVdTNHUmX2NsZGVlPUxfZ0sxa01fYnBBXzF6dDJQTE1qX0EtS1FRU0hQMl8wVzFCZmVQcGZhQ29HTWNfVnlhZTdXM3dkVTFpeGpRZGwmcmVjaXBpZW50aWQ9Y29udGFjdC1hNmI2YjEyNTY2NGRlZTExYmU2ZTYwNDViZDhjNTFmZS1jNjc4NTgzODE4ZWM0NDlkODYzYTU1YzhiMmQxYzQzYyZlc2lkPTZhNGM3ODI2LWY5MjgtZWYxMS04NDBhLTAwMGQzYWJmZDk3YiJ9/te6G3zFQuD3C_GyIYNSykw

Sendiherrabústað Íslands í Osló
Hýst af:
Íslandsstofa
Íslandsstofa
Sendiráð Íslands í Osló
Sendiráð Íslands í Osló
Oslo Innovation Week
Oslo Innovation Week