Startup SuperNova Day & Night
Þann 20. september kl. 13:00 munu rísandi stjörnur Startup SuperNova 2024 stíga á svið í stóra salnum í Grósku, halda lokakynningu fyrir framan panel sem skipaður er af reynslumiklum fjárfestum og frumkvöðlum og fara með stuttar fjárfestakynningar.
Sjónvarps- og tónlistarmaðurinn Villi Naglbítur mun stýra viðburðinum af sinni alkunnu snilld. ✨
👉 Eftir kynningarnar gefst svo færi á að spjalla við fjárfestana, skála fyrir teymunum og fá sér léttar veitingar - Frábært tengslamyndunartækifæri!
💥 Föstudagskvöldið kl. 20:00 ætlar Startup SuperNova svo að halda partý ársins í bílakjallara Grósku, og þér er boðið! Þetta er viðburður sem þú vilt alls ekki missa af!
DJ Jay-O mun halda uppi stemningunni og Úlfur Úlfur mun svo trylla lýðinn þegar kvöldið nær hápunkti 🔥
Stjörnurnar úr Startup SuperNova mæta, fjárfestar og sprotar ásamt öðrum lykilþátttakendum úr nýsköpunarumhverfinu. 💥
Startup SuperNova er í umsjón KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku hugmyndahúsi




