Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Frá fræi til frama: Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2024
Hotel Borg by Keahotels

Frá fræi til frama: Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2024

6. júní kl. 15:00 - kl. 16:30 2024

Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2024 verður haldinn fimmtudaginn 6. júní, undir yfirskriftinni: Frá fræi til frama. Þá fagnar Tækniþróunarsjóður einnig 20 ára afmæli á þessu ári.

Fundurinn hefst klukkan 15:00, auk þess sem hann verður í beinu streymi.

Fundurinn verður haldinn í Karólínustofu á Hótel Borg

Tækniþróunarsjóður fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og við þau tímamót verður horft til fortíðar, nútíðar og framtíðar fyrir Tækniþróunarsjóð og nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Gestir fá að heyra reynslusögur frá nýsköpunarfyrirtækjum og í lok fundar verður vorúthlutun sjóðsins árið 2024 fagnað.

Viðburðurinn er opinn öllum en gestir beðnir um að skrá þátttöku.

Dagskrá og skráning á vef Rannís: https://www.rannis.is/frettir/vorfundur-taeknithrounarsjods-2