Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Vistkerfi nýsköpunar
Gróðurhúsið, Lækjartorgi

Vistkerfi nýsköpunar

15. maí kl. 09:00 - 16. maí kl. 16:00 2024
Gróðurhúsið, Lækjartorgi

Í hvernig borg blómstrar nýsköpun?

Kíktu í heimsókn til okkar í Gróðurhúsið á Lækjartorgi 15.-16. maí . Þar verður Reykjavíkurborg með opið hús og örviðburði frá kl. 10-16 sem setja nýsköpun í borginni í fókus.

Hvað þarf til að tryggja skapandi verkefnum frjóan jarðveg? Hvernig hlúum við að nýsköpun sem eykur lífsgæði íbúa nú og í framtíðinni? Í fjölbreyttri dagskrá getur þú kynnst ýmsum hliðum nýsköpunar í Reykjavík og hvernig hún getur vaxið og dafnað.

Dagskráin á Lækjartorgi er hluti af Iceland Innovation Week og er Reykjavíkurborg bakhjarl hátíðarinnar.

Við hlökkum til að sjá þig!

Dagskrá: https://reykjavik.is/innovationweek

Gróðurhúsið, Lækjartorgi
Hýst af:
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg