Ráðhús Reykjavíkur
Athafnaborgin 2024 - opið samtal við atvinnulífið
24. maí kl. 09:00 - kl. 11:00 2024
Hýst af Reykjavíkurborg
Árviss kynningar- og umræðufundur borgarstjóra um það sem er á döfinni í uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og atvinnutækifæra í Reykjavík verður haldinn í ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 24. maí kl. 9 – 11. Boðið upp á morgunhressingu frá kl. 8.30.
Hvernig mæta uppbyggingarsvæðin þörfum atvinnulífsins og hvernig getur borgin aukið skilvirkni þjónustu sinnar við uppbyggingaraðila?
Kynnt verða helstu atvinnusvæðin og þekkingarkjarnar. Farið verður yfir stærstu uppbyggingarverkefnin sem eru í gangi hjá fyrirtækjum og innviðaverkefni opinberra aðila. Ferðaþjónustunni verða gerð góð skil, sem og nýsköpun og grænum sóknarverkefnum.
Dagskrá og skráning á https://reykjavik.is/athafnaborgin-2024

