Hringiðuhádegi
Þann 17. apríl 2024 bjóða Orkuveitan og Klak í "Hringiðuhádegi" á Á Bístró.
„Hringiðuhádegi“ er hádegis viðburður þar sem sprotafyrirtækin sem taka þátt í Hringiðu 2024, halda örkynningu um verkefnin sín og sitja fyrir spurningum.
Léttur hádegismatur verður í boði. 🥣🍞
Verið öll velkomin, en vegna takmarkaðs sætafjölda biðjum við ykkur um að skrá mætingu hér 👉 https://orkuveitan.is/hringiduhadegi/
Það eru níu sprotafyrirtæki sem taka þátt í Hringiðu 2024, þau eru:
🌱 Arctic Fibers
Arctic Fibers er að umbreyta lúpínu á Íslandi í aðgengileg efni fyrir byggingariðnað, textíl og fleira.
🌱 Circula
Recoma Ísland endurvinnur samsettar pappaumbúðir svo sem Tetra Pak og framleiðir úr þeim grænar byggingaplötur
🌱 Ekkó
Ekkó framleiðir toghlera fyrir fiskveiðar. toghlerar Ekkó spara bæði olíu og svífa yfir botni hafsins og þar með vernda lífríkið á hafsbotni.
🌱 Flöff – textílvinnsla
Flöff ætlar að koma á fót fyrstu textíl endurvinnslustöðinni á Íslandi, þar sem ónothæfur textíll er brotinn niður og úr honum sköpuð ný verðmæti.
🌱 Í djúpum
Hrossatað á Íslandi er einstaklega van nýtt afurð. Í djúpum vinnur að því að búa til gæða áburð úr hrossataðinu og stemma þá sömuleiðis við innflutning á moltu og áburði.
🌱 Ró
RÓ rannsakar og hannar vitsvæna nytjahluti með áherslu á veliðan og rósemi, bygða á stadbundnum hráefnum.
🌱 SeaGrowth
SeaGrowth ætlar að framleiða vistræktaðan fiskmassa úr fiskfrumum fyrir matvælaframleiðslu.
🌱 VELJA
Velja er hugbúnaðarlausn sem býður upp á fataleigu í formi ‘capsule’ fataskápa sem mætir fjölbreyttum fataþörfum einstaklinga á sjálfbæran hátt.
🌱 Visttorg
Visttorg safnar sjálfbærniupplýsingum fyrir byggingarvörur og setur þær á aðgengilegt stafrænt form

