Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Hvernig finn ég fjárfestana?
Gróska hugmyndahús

Hvernig finn ég fjárfestana?

7. mars kl. 11:45 2024
Hýst af Rannís

Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS), Rannís og Enterprise Europe Network á Íslandi bjóða á viðburðinn „Hvernig finn ég fjárfestana?“ fimmtudaginn 7. mars í Fenjamýri, Grósku.

Á þessum viðburði fá gestir kynningar frá þremur reynsluboltum á sviði fjárfestinga, þeim Ásthildi Otharsdóttur, partner hjá Frumtaki, Ragnheiði H. Magnúsdóttur, stofnanda og fjárfestis hjá Nordic Ignite og Davíði Símonarsyni framkvæmdastjóra og meðstofnanda Smitten. Starfsemi EDIH-IS verður einnig kynnt.

Salurinn opnar kl. 11:45 og hefst fundurinn

kl. 12:00. Léttur hádegisverður í boði. Nauðsynlegt er að skrá sig. Teymi EDIH-IS og EEN taka á móti gestum og stýra viðburðinum.

Skráðu þig hér: https://forms.office.com/e/8XrgAG1aMg

Nánari upplýsingar um fyrirlesara má finna á vef Rannís:

https://www.rannis.is/frettir/hvernig-finn-eg-fjarfestana-kynningarfundur-rannis-og-edih-is