Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Rannís kynnir fjölbreytt styrkjatækifæri í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri
Menningarhúsið Hof

Rannís kynnir fjölbreytt styrkjatækifæri í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri

11. janúar kl. 12:00 2024

Þann 11. janúar næstkomandi stendur Rannís í samvinnu við SSNE fyrir hádegisverðarfundi kl. 12:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Kynningum verður skipt eftir sviðum; menntasjóðir, æskulýðssjóðir, menningarsjóðir, rannsóknir og nýsköpun (Tækniþróunarsjóður og skattfrádráttur).

Kynntir verða sjóðir og innlendar, norrænar, evrópskar og alþjóðlegar styrkjaáætlanir í umsýslu Rannís, til dæmis Nordplus , Erasmus+ , Creative Europe , Tækniþróunarsjóður auk skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna .

Við hvetjum starfsfólk sveitarfélaga, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnana, æskulýðsgeirann, listafólk, fyrirtæki, ungmenni og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og kynna sér fjölþætta möguleika.

Sérfræðingar Rannís verða til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana á evrópsku/alþjóðlegu samstarfi nánar.

Húsið opnar kl. 12:00 með súpu og almennri kynningu áætlana i Hamri. Eftir það hefjast sértækari kynningar í Hamri, Setbergi og á svölum. Gott svigrúm verður gefið til spurninga, aðstoðar við umsóknir, þróun á hugmyndum og svo framvegis. Gert er ráð fyrir að viðburðinum ljúki eigi síðar en 15:00.

Menningarhúsið Hof
Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Tækniþróunarsjóður
Tækniþróunarsjóður
Rannís
Rannís