Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Samtal um græna styrki
Norðurslóð 4

Samtal um græna styrki

22. nóvember kl. 12:00 2023

📣Rannís og Samband Íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við SSNE og Eim, standa fyrir opnum hádegisfundi á Akureyri þann 22. nóvember næstkomandi.

🎯Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða. 🔎

🗣Þá verður einnig fjallað sérstaklega um verkefnið RECET, en það hlaut nýverið styrk úr LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. RECET er samstarfsverkefni fimm landa með Ísland í fararbroddi og eru það Íslensk nýorka og Eimur sem leiða verkefnið hér á landi með þátttöku Vestfjarðastofu og SSNE.🌎

Dagskrá:

🔸 Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim

🔸 Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB​

🔸 LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB​

🔸 European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög ​vegna orkuskipta

🔸RECET – Vegferðin sem leiddi til styrks, staðan í dag og næstu skref

🔸 Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir ​til samstarfs og þátttöku

🔸 Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn ​

Upplýsingar:

⏰- Fundurinn fer fram kl. 12:00 -13:00,

📅- miðvikudaginn 22. nóvember

📍- Staðsetning, Borgir og einnig streymt á Teams.

✍️Vinsamlegast skráið þátttöku hér: https://forms.office.com/e/Z4JMuireFt

🥐🍰☕Boðið verður upp á léttar veitingar. 🥐🍰☕

Vonumst til að sjá sem flest.

Norðurslóð 4
Borgir (Herbergi: R262)
Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Rannís
Rannís
Eimur
Eimur