Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum
Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins bjóða til Nýsköpunarþings 2023 í Grósku 26. október kl. 13:30-15:00. Á þinginu verður kastljósinu beint að nýsköpunarfyrirtækjum sem starfa á sviði líf- og heilbrigðisvísinda.
Stofnendur og stjórnendur Íslenskrar erfðagreiningar, Kerecis, Alvotech, NOX Medical, Sidekick Health, BIOEFFECT og Oculis munu fjalla um árangur sinna fyrirtækja frá mismunandi sjónarhóli. Öflug nýsköpun á sviði líf- og heilbrigðisvísinda hefur leitt af sér þúsundir hátæknistarfa og milljarða í útflutningstekjur. Samfélagslegt mikilvægi þessara fyrirtækja er einnig mikið því starfsemi þeirra bjargar mannslífum, bætir heilsu og eykur lífsgæði fólks um allan heim.
Í lok þingsins mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023.
Skráning hér: https://bit.ly/Nyskopunarthing2023
Beint streymi hér: https://vimeo.com/event/3803099
Fundarstjóri: Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
Dagskrá:
13:30 Setning
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
13:35 Aðalerindi
Brautryðjandinn
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
Einhyrningurinn
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis
14:05 Styttri erindi
Lilja Kjalarsdóttir, forstöðumaður rekstrar og stefnumótunar í rannsókna- og þróunardeild Alvotech
Einar Stefánsson, stofnandi Oculis
Sæmundur Oddsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri lækninga og rannsókna Sidekick Health
Berglind Johansen, framkvæmdastjóri sölusviðs BIOEFFECT
Sveinbjörn Höskuldsson, þróunarstjóri Nox Medical
14:45 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2023
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
15:00 Léttar veitingar og spjall í miðrými Grósku




