Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamót á Vesturlandi
Hefurðu áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi en veist ekki hvar þú átt að byrja? Mættu á frumkvöðla- og fyrirtækjamótið „Nýsköpun í vestri“ og taktu þátt í að fræðast um nýsköpun og frumkvöðlastarf, móta nýjar hugmyndir og kynnast nýju fólki. Hádegismatur í boði og léttar veitingar í lok dags.
Nýsköpun í vestri opið öllum þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, umhverfismálum og sjálfbærni.
10:00 - Opnunarorð
10:10 - Vinnustofa - leiðarvísir frumkvöðla og fyrstu skrefin
11:45 - Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands
12:15 - Hádegisverður
13:00 - Reynslusögur frumkvöðla
14:00 - Heimsókn í Kvikuna, nýsköpunarsmiðju
14:30 - Vinnustofa - helstu áskoranir frumkvöðla, ykkar eigin leiðarvísir og kynningar
16:30 - Næstu skref: Vesturbrú og Uppbyggingasjóður
17:00 - Stefnumót og veitingar
Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, reynslusögum og tengslamyndun. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Nýsköpunarrýmið Kvikan verður heimsótt og dagurinn endar með léttum veitingum og stefnumóti.
Markmið frumkvöðla- og fyrirtækjamótsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.
Öll velkomin og þátttaka er ókeypis. Skráning er nauðsynleg undir "Miðar/Tickets" til að áætla veitingar og minnka matarsóun - ekki er nóg að setja "Going" á viðburðinn.
Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.


