Nýsköpunarverðlaun Samorku
Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í þriðja sinn á opnum fundi í Hörpu mánudaginn 18. september kl. 13.00 - 14.30.
Öflug nýsköpun í orku- og veitugeiranum er mikilvæg fyrir þær umbreytingar sem framundan eru á orkukerfum heimsins og til að vinna gegn loftslagsbreytingum.
Fjölmörg spennandi nýsköpunar- og sprotafyrirtæki vinna að fjölbreyttum orku- og veitulausnum eða framleiða vörur úr auðlindastraumum frá orku- og veitufyrirtækjum landsins. Fjögur fyrirtæki eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2023. Þau eru:
ATMONIA
GEROSION
HÁAFELL
SNERPA POWER
Dagskrá:
Nýjar lausnir fyrir nýja tíma - Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku
Umgjörð nýsköpunar og tækni í Svíþjóð - Magnus Rehn, fjárfestir, stjórnendaráðgjafi og ráðgjafi nýsköpunarfyrirtækja hjá Sting
Fyrrum handhafar Nýsköpunarverðlauna Samorku taka stöðuna í léttu pallborði - Linda Fanney Valgeirsdóttir hjá Alor og Ósvaldur Knudsen hjá Laki Power
Afhending verðlauna: Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups og talsmaður dómnefndar gerir grein fyrir rökstuðningi dómnefndar. Ásta Sóllilja og Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku afhenda verðlaunin.
Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis, en skráningar er óskað.

