Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Einkaleyfi, vörumerki og hönnun í nýsköpun og rekstri
Bárugata 15

Einkaleyfi, vörumerki og hönnun í nýsköpun og rekstri

28. nóvember kl. 12:00 2024

Starfar þú við nýsköpun eða rekstur? Hefur þú fundið eitthvað upp sem þú þarft að tryggja þér einkaleyfi á? Viltu vera viss um að annað fyrirtæki sé ekki að nota svipað vörumerki fyrir sömu vöru eða þjónustu og þú býður? Viltu koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar geti nýtt sér þínar uppfinningar, vörumerki eða hönnun? Komdu þá og kynntu þér vernd hugverkaréttinda á hádegisfyrirlestri í boði Breiðar þróunarfélags, Gleipnis og Hugverkastofunnar, fimmtudaginn 28. nóvember kl. 12:00 – 13:00 á Breið, Bárugötu 8-10, Akranesi.

Kynningar halda Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar, sem mun kynna hvað einkaleyfi, skráð vörumerki og hönnun eru og af hverju fyrirtæki og einstaklingar ættu að vernda hugverk sín með skráningu, hvernig þau eru skráð og fleira. Ásdís Kristmundsdóttir, þjónustustjóri Hugverkastofunnar, mun kynna þá þjónustu og ráðgjöf sem Hugverkastofan býður upp á. Að loknum fyrirlestrum verður boðið upp á umræður og örráðgjöf.

Öll velkomin.